Bílaleiga Avis

Bílaleiga Avis hefur starfað í yfir 60 ár eða allt frá árinu 1946 þegar Warren E. Avis kom auga á möguleikana sem fólgnir voru í að tengja saman flugferðir og bílaleigu og opnaði sína fyrstu bílaleigustöð í flugstöðinni í Detroit.  Bílaleiga Avis er í dag ein stærsta bílaleiga heims með yfir 5.000 starfsstöðvar í 165 löndum.

Í gegnum tíðina hefur bílaleiga Avis skapað sér orðspor sem framsækin bílaleiga sem gengur lengra en flest fyrirtæki til að tryggja ánægju viðskiptavina sinna og hefur tekist að gera þennan þátt að miðpunkti í öllu starfi fyrirtækisins sem og menningu þess. Þessi þrotlausa viðleytni til að gera stöðugt betur hefur skilað sér í mikilli ánægju viðskiptavina og viðskiptavild á alþjóðavísu sem talin er ein sú mesta sem nokkurt vörumerki hefur.

Þurfir þú að leigja bíl, hérlendis eða erlendis getur þú verið viss um að bílaleiga Avis mun ávallt veita þér bestu þjónustu sem bílaleiga býður upp á.

Smellt hér til að fara á vef Avis bílaleigu