Þegar þú kaupir Avisbíl þarftu ekki að spá í flóknar lánareglur milli fyrirtækja m.v. aldur bílsins og hvort þú munir nú fá lán á hann eða ekki. Alla avisbíla má einfaldlega fjármagna hjá Ergó allt upp að 70%. Bílasamningur er sú leið sem langsamlega flestir velja en bílalán kemur einnig til greina allt eftir því hvað þér hentar best.
Helstu kostir bílasamnings
- Allt að 70% fjármögnun
- Lánstími allt að 7 ár
- Jafnar greiðslur út samningstíma
- Engin stimpil- eða þinglýsingargjöld
- Ekkert umfram- eða uppgreiðslugjald af bílaláninu
- Gull- og platinumhafar Ergo fá afslátt af lántökugjöldum og fá betri vaxtakjör**
- Ef þú kýst að skipta út bílnum á lánstímanum geturðu sameinað eldra lán og nýtt eða fengið veðflutning*
- Þegar samningstíma lýkur eignast þú bílinn
*Veðflutningar eru háðir lánareglum Ergo.
**Skilvísir viðskiptavinir Ergo annars vegar og hins vegar skilvísir viðskiptavinir Íslandsbanka í gull- eða platinumvild.
Helstu kostir bílaláns