Þrátt fyrir að undanfarin 90 ár hafi bílar breyst mikið bæði í útliti og verði,- hefur það að kaupa bíl að sama skapi lítið breyst. Asinn er sá sami og nánast er ætlast til að þú finnir bíl, prófir hann og skrifir undir,- allt á sama klukkutímanum.
Við hjá Avisbílum gerum okkur grein fyrir að bílakaup geta verið mjög stressandi og bjóðum þess vegna allt að 3 daga reynsluakstur svo þú fáir virkilega gott svigrúm til að meta hvort bíll sem þér líst vel á hentar þegar á hólminn er komið.
Ef þú telur að bílinn ekki henta geturðu skilað honum hvenær sem er innan tímabilsins og greiðir þá aðeins daggjald fyrir leigu bílsins þann tíma. Ákveðir þú hinsvegar innan þessara þriggja daga að kaupa bílinn, greiðir þú ekkert gjald.
Að kaupa avisbíl er þannig öðruvísi upplifun.
Allar frekar upplýsingar um reynsluakstur veita sölufulltrúar á þeim stað sem bíll er staðsettur.




